Saga farþegaflutninga Freydísar sf

Að flytja farþega til og frá Hornströndum á sér langa sögu hjá þessari útgerð, á þeim árum sem faðir minn Vilmundur Reimarsson sótti rekavið á Hornstrandir á sumrin fengu margir að fljóta með því ferðir voru stopular á þetta svæði. Það var ekki fyrr en í kringum 1980 sem ferðum fór að fjölga á strandir, í skipulögðum gönguferðum svo og með fjölgun hraðbáta. Árið 1995 keyptum við feðgar saman bát af gerðini Sómi 800 sem fék nafnið Freydís ÍS. Var hann fyrstu tvö sumrin gerður út á fiskveiðar en einnig voru farnar ferðir með fólk á strandir þegar færi gafst. Það var svo sumarið 1997 sem bátnum var breytt til að stunda eingöngu farþegaflutninga.

Mest var flutt af farþegum í Jökulfirði og vestari hluta Hornstranda. Haustið 2000 var Freydísin seld og sumarið 2001- 2002 vorum við að byggja upp gistiþjónustu í Bolungarvík á Hornströndum og sinna henni. Vorið 2003 var keyptur bátur af gerðinni Cleopatra 28 og fékk hann nafnið Sædís-ÍS. Það sumar voru farnar nokkrar ferðir með fólk á milli Reykjafjarðar og Norðurfjarðar og um haustið var ákveðið að útbúa þann bát til farþegaflutninga.

Sumarið 2004 gekk vel og fluttir voru um 650 farþegar aðallega á milli Norðurfjarðar og Reykjafjarðar en líka út í Bolungavík og Hornvík. Sumarið 2005 var fyrsta sumarið sem boðið var upp á áætlun á þessari siglingaleið og var það mjög vel nýtt, svo vel að það var ákveðið að ráðast í það verkefni að kaupa nýjan bát sem sníðaður var hjá Seiglu ehf. Sá bátur kom til Bolungarvíkur 27 mai 2006 og byrjaði í siglingum í júni það ár. Nýji báturinn sem fékk nafnið Sædís- ís 67 og tekur allt að 30 farþega hefur nú verið 3 sumur í farþegaflutningum og hefur reynst vel.  
Vefumsjón