Gistiþjónusta Mávabergs ehf.

Gistiþjónusta Mávabergs ehf. í Bolungavík á ströndum var stofnuð árið 2002 og það ár var lokið við viðbyggingu ásamt sólskála gistihússins. Aðstaða fyrir ferðafólk hefur verið til staðar í Bolungavík síðan 1971 en það ár var byggt 26 fermetra hús á Seli . Var sú aðstaða alltaf ólæst svo allir sem um svæðið fóru gátu nýtt sér hana og samkvæmt gestabókum hefur margur ferðalangurinn komið þar við. Árið 1984 hófum við feðgar að byggja hús á Naustum sem var meira ætlað fyrir okkur sjálfa auk þess sem lendingin var betri þar. Það hús var einungis um 14 fermetrar að stærð í byrjun en var stækkað upp í núverandi mynd árið 1990-1992 og er í dag um 65 fermertrar. Í febrúar 1991 fauk húsið sem var á Seli á haf út með öllu sem í því var.

Árið 1997 hófum við feðgar smíði þess gistihús sem notað er í dag. Fyrst var byggt 26 fermetra skáli eftir sömu teikningu og húsið sem var á Seli. Í því er eldunaraðstaðan, salerni, sturta, fjórar kojur og svefnbekkur. Strax fyrsta sumarið reyndist húsið of lítið svo árið eftir var ráðist í stækkun. Þá var byggður 26 fermetra svefnskáli við vesturendann með kojuplássi fyrir um tíu manns. Árið 2001-2002 var reist við austurendann 12 fermetra herbergi fyrir olíukyndinguna og í því herbergi eru þrjú rúmstæði auk þess sem reistur var sólskáli fyrir framan alla innganga. Árið 1999 var útbúin salernisaðstaða skammt frá húsinu sem nýtist fyrir tjaldstæðin líka. Í dag er gistiaðstaða fyrir tuttugu manns í kojum auk þess sem hægt er að koma fleirum fyrir með því að koma fyrir dýnum á gólfi.

Verð á gistingu:
Verð á nótt fyrir fullorðna er kr. 3500 og kr. 2000 fyrir 6-12 ára.
Vefumsjón