Sleðaferð

Reimar Vilmundarson | föstudagurinn 26. nóvember 2010
« 1 af 3 »
Nú í vikunni var skroppið á sleðum til Bolungavíkur og Reykjarfjarðar. Nógur snjór var til að komast heim að húsum á báðum stöðum, allt reyndist í fínu lagi. Farið var af Steingrímsfjarðarheiði og upp á Drangajökul, veður var mjög gott á miðvikudeginum en lentum í éljagangi á heimleiðinni í ferðini voru

Reimar Vilmundarson
Sigurður Stefánsson
Ásgrímur Smári
Sigurður Hjartarson

Vélarbilun

Reimar Vilmundarson | fimmtudagurinn 28. október 2010
gataður stimpill
gataður stimpill
« 1 af 2 »
Lítið hefur gengið að koma vélinni í Sædísinni í lag þar sem hluti þeirra varahluta sem keyptir voru hjá Brimborg voru gallaðir og langan tima tekur að fá  nýja. Allir stimplarnir í vélinni voru orðnir sprungnir og því aðeins tímaspursmál hvenær svona færi. þetta er 3 Volvo penta vélin af þessari týpu sem bilar svona og lýsir bilunin sér nákvæmlega eins í öllum vélunum 3. Allar þessar vélar eiga það sammerkt að vera tiltölulega lítið keyrðar eða á bilinu 4-7000 tíma og er umboðið Brimborg nú í óðaönn að reyna sannfæra okkur eigendur um að þetta sé eðlileg ending. 

vikan 18-22,10

Reimar Vilmundarson | föstudagurinn 22. október 2010
« 1 af 2 »
Nú í vikunni hefur verið unnið að viðgerð á aðalvél Sædísar sem bilaði í síðustu viku.  Búist er við að viðgerð ljúki um eða eftir miðja næstu viku. það eru starfsmenn vélsmiðjunnar Þryms á Ísafirði sem sjá um viðgerðina . Á meðan á viðgerðinni stendur hef ég verið á Norðurfirði að saga timbur fyrir Guðlaug á Steinstúni og hefur það gengið mjög vel.  
Vefumsjón