Nýjar myndir

Hildur Eiðsdóttir | laugardagurinn 27. desember 2008
Sumir hafa verið duglegir og dundað sér við að setja inn myndir. Bæði inn í flokka sem eru fyrir en líka nýjar. Komnar eru inn myndir úr eggjaferð sem farin var í Hornbjarg síðasta vor.
Ætlunin er að halda áfram að setja inn myndir þegar færi gefst.

Jólakveðjur

Hildur Eiðsdóttir | fimmtudagurinn 25. desember 2008

Sendum öllum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári.

Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.

Jólahlaðborð

Hildur Eiðsdóttir | sunnudagurinn 14. desember 2008
Eigendur og áhöfn brugðu undir sig betri fætinum í gærkvöldi og skelltu sér á jólahlaðborð í Einarshúsi hjá Rögnu vert. Á boðstólum voru margvíslegar kræsingar sem gerðar voru góð skil. Mikil og góð stemming var á staðnum og ekki skemmdu skemmtiatriðin fyrir. Síðan tók við hljómsveit hússins sem hélt uppi fjöri fram eftir nóttu. Ahafnarmeðlimir vöknuðu svo hressir og kátir í morgunsárið, skelltu sér út og komu netum í sjó.
Vefumsjón