Hákarl í netin

Reimar Vilmundarson | sunnudagurinn 15. janúar 2012
« 1 af 3 »
þegar verið var að vitja netanna í dag var hákarl í einni trossunni. Hákarlinn sem var 350 kg kom í endann á trossu og var hann lifandi og því frekar erfit að koma á hann böndum þar sem áhöfnin telur aðeins 1 mann en það hafðist þó fyrir rest. Annar afli í dag var um 1200 kg. mest þorskur

Bjarnarnes ís selt

Reimar Vilmundarson | miðvikudagurinn 21. desember 2011
Nú hefur verið gengið frá sölu á Bjarnarnesinu farþegabát Sigga Hjartar kaupendur eru eigendur  Borea Adventures og hyggja þeir á áfram haldandi rekstur á bátnum í farþegasiglingum frá Bolungarvík óska ég þeim velfarnaðar með kaupin.

Ferðalok

Reimar Vilmundarson | mánudagurinn 10. október 2011
Ferðalok er titill sem nota má á þær fréttir sem ég flyt hér, ákvörðun hefur verið tekin um að vera ekki með farþegaflutninga á Sædís ís 67 næsta sumar. Til skoðunar er að bjóða upp á flutning á vörum (trússi) ef eftir verður óskað.
14 ár eru liðin frá því að ég fór fyrstu ferðir með farþega í atvinnuskyni, síðan þá eru ferðirnar orðnar margar bæði frá Bolungarvík sem og Norðurfirði.  Í þessum ferðum hef ég kynnst miklum fjölda af skemmtilegu fólki innlendu sem erlendu og átt gott samstarf við marga. Vil ég hér með koma á framfæri þökkum til þeirra sem og samstarfsmanna og aðila sem hafa verið mér samferða í gegnum árin.
Reimar Vilmundarson
Fyrri síða
1
234567232425Næsta síða
Síða 1 af 25
Vefumsjón